Rollsinn í bílskúrsgólfefnum
Swisstrax er heildstætt gólfflísakerfi sem notið hefur vinsælda í Ameríku og víðar um heim í yfir 25 ár.
Swisstrax samanstendur af 7 mismunandi tegundum gólfflísa sem allar hafa sama tengikerfið og geta því tengst saman.
Swisstrax flísarnar eru einfaldlega lagðar yfir það gólf sem fyrir er, t.d. steinflísar, epoxý, steypugólf o.s.frv, og nánast hver sem er getur gert það án aðkomu iðnaðarmanns.
Vinsælustu flísategundirnar í Swisstrax seríunni eru RIBTRAX (á bílskúrinn) OG RIBTRAX SMOOTH (SMOOTHRAX) (á svalirnar o.fl.)
Bæði Ribtrax og Ribtrax smooth eru með sjálfdrenandi ristakerfi.
9.900 kr/m² (listaverð 11.850 kr./m²)
Hafðu samband við sölumann í síma 777 6511 eða á netfangið straxgolf@straxgolf.is
Ný verslun & sýningarsvæði á Akureyri
Straxgólf opnar nú verslun & sýningarsvæði á Akureyri, þar sem viðskiptavinir geta kynnt sér og skoðað Swisstrax gólfflísakerfið, og fengið ráðgjöf á staðnum.
Fyrirtækið Straxgólf hefur starfað í 6 ár sem umboðsaðili Swisstrax á Íslandi, en er nú í fyrsta skipti með aðgengilegt sýningarsvæði fyrir almenning á Akureyri.
Swisstrax er leiðandi fyrirtæki á sínu sviði á heimsvísu, og eru flísarnar þekktar fyrir styrk, loftflæði, auðvelda uppsetningu og frábært útlit.
Þær henta vel í bílskúra, verkstæði, svalir & sólpalla, líkamsræktarrými, sýningarsali og fjölmörg önnur rými.
Nýja verslunin og sýningarsvæðið er staðsett við Laufásgötu 9, (ská á móti Löður).
Í tengslum við opnunina verður boðið upp á sérstakt vortilboð á Swisstrax gólflfísum, sem gildir til 30. apríl, og hægt er að kynna sér nánar hér
Verslunin opnar þriðjudaginn 21. apríl kl. 16, og verður opið til kl. 19.
Opið alla virka dag í vikunni milli kl. 16-19
Upplýsingar um opnunartíma eftir það verður að finna hér á síðunni og á facebook síðu Straxgólf
Ribtrax er mest selda týpan hjá Swisstrax. Ribtrax dregur nafn sitt af háþróuðu ristakerfinu. Einföld uppsetning og fjölbreytt litaval í boði. Frábært fyrir bílskúrinn, slitsterkt og þornar hratt.
Ribtrax Smooth er frábært fyrir SVALIR, SÓLPALLA, POTTASVÆÐI, SUNDLAUGARSVÆÐI o.fl. Mjúkt að ganga á, hálkufrítt í bleytu og sjálfdrenandi. Fjölbreytt litaval.
Í Swisstrax seríunni eru fleiri tegurndir flísa sem henta á ýmsum stöðum, en allar Swisstrax flísarnar hafa sama tengikerfið og hægt er því að raða þeim saman að vild.
Fleiri tegundir
Hvers vegna Swisstrax?
Einföld samsetning
Swisstrax-flísarnar eru auðveldar í uppsetningu og getur nánast hver sem er sett upp Swisstrax-gólf án aðkomu iðnaðarmanns. Þannig sparast jafnan drjúgur aukakostnaður vegna uppsetningar. Að sama skapi er auðvelt að fjarlægja flísarnar af gólfi, t.d. við flutninga. Þannig má segja að Swisstrax flísarnar séu ,,fjárfesting í eign” sem óþarfi er að láta fylgja við flutninga, gagnstætt t.d. epoxý-gólfi eða steinflísum.
Einfalt að þrífa
Ristarnar á Ribtrax flísunum hleypa bleytu og óhreinindum í gegnum sig sem gefur þér hreint og þurrt yfirborð. Einfalt er að þrífa undan flísunum með vatnsslöngu og/eða ryksugu að vopni. Þess gerist þó alla jafna ekki þörf nema með löngu millibili.
Auðvelt að skipta um
Þökk sé 24 punkta tengikerfinu þá tryggir Swisstrax öruggustu samtengingu flísa í þessum bransa. Hönnunin gerir einnig kleift að kippa upp hvaða flís sem er innan gólfkerfisins – ef þörf krefur. Til dæmis ef eyrnalokkur eða skrúfa dettur niður um ristarnar.