Algengar spurningar
Er hægt að nota Swisstrax gólfflísar utandyra?
1
Já, Ribtrax og Smoothrax er hægt að nota jafnt utan- sem innandyra. Swisstrax þolir íslenska veðráttu, og miklu meira en það. Ákveðin hitaþensla getur þó átt sér stað, í sterku sólskini um langan tíma – sem er sjaldnast stórt vandamál á Íslandi.
Er hætta á því Swisstrax flísar upplitist við notkun utandyra?
2
Swisstrax gólfflísarnar hafa UV – vörn gegn geislum sólar, sem bæði er innbyggð í efnið sjálft (PP) sem og litarefnið. Þetta er eitthvað sem nánast ekkert annað fyrirtæki gerir við framleiðslu PP gólfflísa. Swisstrax veitir 2 ára ábyrgð gegn upplitun á öllum litaafbrigðum Swisstrax gólfflísa.
Hvaða tegund af Swisstrax gólfflísum er best að nota á bílskúrinn?
3
Þessi spurning er auðveld! Ribtrax er flaggskipið okkar, og hefur í raun valdið því að sá iðnaður sem snýr að bílskúrsgólfefnum hefur tekið stakkaskiptum. Ribtrax flísarnar eru með rifum, sem hleypa í gegnum sig óhreinindum, sandi, drullu, snjó, salti, vatni o.fl.; en þannig getur þú ávallt haft hreint bílskúrgsólf sem gleður augað. Ribtrax flísarnar eru einnig útbúnar rásakerfi í undirlagi sínu (1/4“) sem liggur í ólíkar áttir – og hleypir þannig vatni í gegn. Þetta auðveldar þrif undir flísunum. Margir viðskiptavinir nota þrýstivatnsdælur, ryksugur eða garðblásara til að halda gólfinu hreinu. Það besta er, að Ribtrax flísarnar krefjast lágmarks viðhalds vegna þrifa.
Vegna sinnar sérstöku undirbyggingar og hönnunar þola Ribtrax flísarnar hitabreytingar einnig mjög vel.
Getur maður lagt gólfflísarnar sjálfur, eða þarf iðnaðarmann í verkið?
4
Swisstrax flísarnar eru markaðssettar sem „DIY“, sem er skammstöfun á ensku fyrir Do It Yourself, eða „Gerðu það sjálfur“. Það þýðir í raun að nánast hver sem er, er fær um að leggja Swisstrax flísarnar á gólfið sitt. Undir venjulegum kringumstæðum má reikna með að það taki óvanan mann u.þ.b. 4 klukkustundir að leggja flísarnar á tveggja bíla bílskúr; en vanur maður gæti gert það á ca 2-2 ½ klukkustund. https://youtu.be/WdbyPKoDF-s
Hvaða verkfæri þarf ég?
5
Stutta svarið er – þú þarft ekki mörg verkfæri! Gott gæti þó verið að hafa við höndina merkipenna, málband, og einhvers konar rafmagnssög (borðsög eða stingsög) til þess að sníða til flísarnar. Og að sjálfsögðu....hendurnar þínar til þess að festa flísarnar saman.
Hversu lengi hafa Swisstrax gólfflísar verið framleiddar?
6
Fyrirtækið Swisstrax á rætur sínar að rekja til Sviss og eru flísarnar afrakstur svissneskrar verkfræði og hugvits. Flísarnar hafa verið framleiddar í meira en 25 ár, en árið 2005 var framleiðslan færð frá Sviss til Bandaríkjanna, og það var þá sem fyrirtækið Swisstrax varð formlega til.
Hvar eru Swisstrax flísarnar framleiddar?
7
Swisstrax hefur starfrækt framleiðsluverksmiðju í Bandaríkjunum síðan 2005, og árið 2013 var opnuð önnur verksmiðja í Kanada. Einnig er verksmiðja í Frakklandi, sem þjónustar Evrópumarkað.
Hvers vegna heitir fyrirtækið Swisstrax?
8
Til þessa dags er öll okkar framleiðsla hönnuð í Sviss. Svisslendingar eru sérfræðingar þegar kemur að verkfræði og hönnun, og þeir eru ástæðan fyrir okkar einkaleyfisvarða 4-punkta þrýstikerfi sem gerir Swisstrax gólfflísunum kleift að þola gríðarlegan þunga.
Er hægt að snúa eða beygja vélknúnu ökutæki á Swisstrax-gólfflísunum?
9
Já, það er hægt. Við mælum þó ekki með því að dekkjum bifreiðar sé snúið til fulls sé hún kyrrstæð, þar sem það getur valdið miklu álagi á tengingarkerfi flísanna.
Get ég fjarlægt eða skipt út flís úr miðju gólfi?
10
JÁ, ALGJÖRLEGA!! Þetta er eitt af því sem Swisstrax gólfflísarnar eru þekktar fyrir. Þú getur notað skrúfjárn með flötum enda, eða álíka verkfæri. Þú grípur í eitt hornið og einfaldlega spennir flísina upp, þökk sé QUICK-SNAP kerfinu okkar. Flísin (eða ný flís) smellist síðan á sama stað með einu handtaki. Þetta kerfi er eitt af því sem markar Swisstrax sérstöðu.
Þola Swisstrax gólfflísar kemísk efni?
11
JÁ, allar Swisstrax gólfflísar hafa mótstöðu gegn kemískum efnum líkt og olíu, þrýstivökvum, o.s.frv. Swisstrax hefur notið vinsælda sem gólfefni í flugskýlum, þar sem Swisstrax flísarnar eru þolnar gegn efninu Skydrol, sem er kemískt efni og mikið notað í flugiðnaði – og hefur einn þann mesta tæringarhraða sem þekkist.
Get ég tjakkað bílinn minn upp á Swisstrax gólfflísum?
12
á, að sjálfsögðu, allar Swisstrax flísarnar þola psi (pounds pr. square inch) allt að ca 2 tonnum; og yfirkeyrsluþyngd allt að 35 tonnum. Engu að síður mælum við með því að notaður sé tréplatti undir tjakkinn.
Úr hverju eru Swisstrax gólfflísarnar gerðar?
13
100% hreinu polypropylene.
Hvað er það sem gerir Swisstrax gólfflísar öðruvísi en hjá „keppinautunum“?
14
Hvar skal byrja? Swisstrax vörurnar eru einu samtengjanlegu gólfflísarnar, og þar sem notað er 4-punkta þrýstimót við framleiðsluna.
Swisstrax gólfflísarnar eru útbúnar QUICK-SNAP kerfi, sem gerir notandanum kleift að fjarlægja einstaka flísar, eða samsafn flísa, frá miðju – eða annars staðar úr fulllögðu gólfi, með einu handtaki.
Með flísar frá samkeppnisaðilum þarftu hins vegar að vinna þig út frá vegg, og fjarlægja allar flísar uns þú kemur að lokaflísinni.
Það eru 20-30% fleiri tengipunktar á hverri hlið Swisstrax flísanna heldur en hjá flísum samkeppnisaðilanna.
Swisstrax gólfflísarnar eru útbúnar vörn gegn UV-geislum sólar, jafnt í grunnefni flísanna, sem og í litarefni þeirra.
Í gegnheilu gólfflísalínu Swisstrax (þ.e. aðrar týpur heldur en Ribtrax og Smoothtrax) er ekki meira 3/8“ bil (void) undir þeim. Margar af flísum samkeppnisaðilanna hafa hins vegar stórt bil undir flísunum sem geta teygst upp í 1 ½“ þegar þær eru tengdar saman. Það getur valdið vankdvæðum ef þú ert með þungan hlut sem liggur á 1 ½“ tómarúmi án nokkurs stuðnings.
Þetta eru einungis nokkur atriði sem aðgreina Swisstrax gólfflísarnar frá gólfflísum „annarra“. https://youtu.be/xCnGH3bs5QE
Nokkrir samstarfsaðilar Swisstrax:
15
Swisstrax er sérleyfishafi fyrir bandarísku stórfyrirtækin: Barret Jackson; Ford; John Deere og Petty´s Garage svo dæmi séu nefnd. Swisstrax þjónustar einnig fyrirtæki s.s. General Motors; Dodge/Chrysler; Mini Cooper; Mercedes; Rockstar Garage; Monster Energy Drink; SEMA-show; MECUM Auctio, auk margra annarra. https://youtu.be/5CsBC20ou7g
Hvernig er best að þrífa Swisstrax gólfflísar?
16
Það eru nokkrar aðferðir við að þrífa flísarnar, en það veltur á því hvaða týpu úr Swisstrax seríunni þú ert með. Sértu með gegnheilar flísar, s.s. Diamondtrax, þá er best að umgangast og þrífa þær líkt og hefðbundið gólf. Þú getur notað vatnsslöngu til að skola af flísunum, eða notað sóp til að sópa burt óhreinindum. Það frábæra við Ribtrax gólfflísarnar er hinsvegar að þær eru þekktar fyrir að vera viðhaldslitlar þegar kemur að þrifum, og einkar þægilegar í umgengni. Þú getur notað þrýstivatnsdælu eða vatnsslöngu til þess að sprauta yfir Ribtrax flísarnar, þannig að óhreinindin renni gegnum rásakerfið undir flísunum og í átt að bílskúrsdyrunum. Einnig er vinsælt að nota ryksugu eða laufblásara. Ef eitthvað skilur eftir sig óhreinindaummerki eða vökvahringi, má einfaldlega nota algeng hreinsiefni sem fást úti í næstu búð.
Hvernig get ég sniðið til Swisstrax gólfflísar á samskeytum, t.d. þar sem veggir mætast?
17
Hægt er að klippa flísarnar með sérstökum flísaklippum með grófu blaði. Langalgengast er þó að fólk noti einfalda rafmagnssög til að sníða flísarnar til. (Borðsög eða stingsög)
Er notast við límefni til að festa flísarnar við gólfið?
18
Nei, Swisstrax gólfflísarnar eru lausar við allt lím, fúgu og kemísk efni. Þær eru einfaldlega lagðar á gólfið; og hægt er að taka þær af með einföldum hætti – t.d. við flutning.
Þarf ég að leggja gúmmídúk undir flísarnar?
19
Einungis er ráðlagt að leggja gúmmídúk undir flísarnar ef EKKI er um að ræða vegg-í-vegg ásetningu; t.d. ef ætlunin er að setja upp staka „bílamottu“. Einnig ef notaðar eru gegnheilar flísar, s.s. Diamondtrax, og ætlunin er að hljóðeinangra – en þá getur gúmmídúkur komið að góðum notum.
Er hægt að leggja Swisstrax gólfflísar yfir sprungur í gólfi?
20
JÁ, leggja má Swisstrax flísarnar beint yfir sprungur í gólfi ef ekki er um verulegan hæðarmismun í gólfi að ræða. Ekki er þó mælt með því ef sprunga veldur meira en 2 sentímetra hæðarmismun í gólfi, og fyrirséð er að ökutæki verði ekið beint þar yfir. Mörg fyrirtæki, s.s. Ford, General Motors, Barret Jackson o.fl. nota Swisstrax gólf á bílasýningum - á almenningsbílastæðum - þar sem ökutækjum er ekið og þeim lagt. Við höfum ekki enn séð bílskúrsgólf sem er í verra ásigkomulagi heldur en almenningsbílastæði!
Get ég lagt Swisstrax gólfflísar yfir niðurfall?
21
JÁ, ALGJÖRLEGA! Ribtrax flísarnar eru FULLKOMNAR fyrir bílskúrsgólf með niðurfalli, með vísan til þess að allt vatn rennur gegnum rásakerfið í undirbyggingu flísanna, í átt að niðurfallinu. Ef viðskiptavinur vill hins vegar alfarið halda sig við gegnheilar flísar (Diamondtrax), er t.d. unnt að nota Ribtrax flís yfir niðurfallið –sem er með rifum – þannig að vatn eigi greiða leið niður.
Er hægt að leggja Swisstrax flísar á gólf, sem er með gólfhita?
22
Já, það er hægt – en þá mælum við eindregið með Ribtrax eða Smoothrax flísum, en þær hleypa hitanum í gegnum sig. Við mælum hins vegar ekki með gegnheilum flísum í þessu skyni, s.s. Diamondtrax, eða Vinyltrax, einfaldlega vegna þess að þær myndu loka inni hitann, sem aftur myndi leiða til hitaþenslu í flísunum og mögulegrar „hrukkumyndunar“.
Eru Swisstrax gólfflísarnar vatnsheldar?
23
Swisstrax flísarnar eru sjálfar vitaskuld algerlega vatnsheldar, og þær eru þekktar fyrir að hafa þéttasta samskeytakerfið á markaðnum. Þrátt fyrir það eru samskeytin ekki vatnsheld, í þeim skilningi að vatn kann að komast þar á milli.
Er hægt að tengja saman mismunandi týpur af Swisstrax gólfflísum?
24
Já, allar Swisstrax-flísategundirnar hafa sama 24 punkta tengikerfið – þannig að leikur einn er að tengja saman mismunandi tegundir af Swisstrax flísum.
Get ég notað Swisstrax gólfflísar á stiga?
25
Já, það er hægt – en við mælum þó ekki sérstaklega með því. Sé það gert, þarf að nota sérstaka aðferð og efni til að festa flísarnar á hliðar stigans. Við myndum í þessum tilfellum venjulega mæla með því að nota þess í stað samsvarandi málningu á hliðar stigans.
Get ég látið prenta vörumerki (logo) á Swisstrax gólf?
26
Já, við höfum yfir að ráða tækni til að útbúa vörumerki (logo) á Swisstrax gólf! Þú sendir okkur mynd af logoinu í góðri upplausn (Vektor-formati) og við sjáum um að prenta hana út á þar til gert efni sem er svo fest á sérstakt undirlag, sem fellur inn í Swisstrax gólfið hvar sem er, eins og hver önnur flís. Það athugast þó, að vegna vörumerkjaréttar þurfa öll tilskilin leyfi að vera til staðar til notkunar umrædds vörumerkis (logo). Einnig er hægt að nota hvaða mynd sem er samkvæmt óskum, þótt ekki sé um vörumerki að ræða.
Gefa Swisstrax gólfflísar frá sér eitraðar lofttegundir?
27
Svarið er NEI !! Þetta er einn af stóru kostunum við 100% hreint polypropylene. Ólíkt PVC gólfflísum (polyvinyl chloride), sem eru afar óvinveittar umhverfinu, þá gefa PP (polypropylene) gólfflísar ekki frá sér neinar lofttegundir, auk þess sem þær eru 100% endurvinnanlegar.
Eru Swisstrax gólfflísar þolnar gegn myglu og sveppamyndun?
28
Á, en þó ber að velja gólfflísar sem hæfa hverju umhverfi fyrir sig. Á svæðum þar sem er mikill raki eða rakamyndun – mælum við EINDREGIÐ með Ribtrax gólfflísum! Ribtrax flísarnar hafa innbyggt loftræstikerfi þar sem loftið leikur gegnum rifurnar í flísunum – og undir slíkum kringumstæðum eru ekki skilyrði fyrir bakteríumyndun, eða myglu- og sveppamyndun.
Er verksmiðjuábyrgð á Swisstrax gólfflísum?
29
Já, allar Swisstrax flísar koma með 20 ára verksmiðjuábyrgð gegn göllum. Þetta sýnir hversu mikla trú Swisstrax fyrirtækið hefur á þessu frábæra gólfefni.
Henta Swisstrax flísarnar við íslenskar aðstæður, s.s. með tilliti til veðráttu, notkunar nagladekkja o.s.frv.?
30
Já, Swisstrax flísarnar eru hannaðar til notkunar við nánast hvaða aðstæður sem er, og þar með talið við íslenskar aðstæður. Þær þola allt að 30 gráðu frosti, og 120 gráðu hita. Swisstrax flísarnar eru hálkufríar í bleytu, og uppfylla staðla Evrópusambandsins um hálkuvarnir gólfefna. Ribtrax flísarnar eru því m.a. upplagðar fyrir framan útidyr til þess að veita fótgangendum öruggt grip í hálku og snjó.
Við lagningu Swisstrax gólfflísa utandyra (f.o.f. Ribtrax eða Smoothtrax), t.d. á svalagólfum, útipöllum o.fl., er alla jafna ekki þörf á að festa flísarnar sérstaklega niður. Í undantekningartilfellum og þar sem sérstakar veðuraðstæður geta myndast, væri sá möguleiki fyrir hendi að bora með steinbor/trébor í gólfið, gegnum lykkjur á köntum Swisstrax gólfsins – og festa þannig aukalega með skrúfum.
Swisstrax flísarnar þola einnig nagladekk. Örsmáar holur að greinast í flísunum eftir notkun nagladekkja, en það hefur engin áhrif á heildarútlit eða gæði gólfsins.